Eitthvað hefur verið um skot og skæting í okkar garð eftir að við birtum vegvísi um Pattaya í Tælandi og bentum á að þar hefði Hermann Gunnarsson dvalið löngum stundum.

Pattaya fær ekki háar einkunnir í okkar bókum og það kann að hafa valdið þeim misskilningi að við værum að gera lítið úr Hermanni. Því fer fjarri. Umræddur vegvísir hefur verið á vef okkar meira og minna óbreyttur frá okkar síðustu ferð á þær slóðir 2010 og þá í annað skiptið.

Ritstjórn þekkir bærilega til Hermanns og lát hans harmdauði enda lífsglaður lífskúnstner með afbrigðum, sannur og traustur og gaf sér tíma fyrir alla fyrir utan að vera jarðbundinn alla tíð þrátt fyrir frægð og frama. Allt kostir sem prýða raunverulega og trausta manneskju.

Við höfum reynt um þriggja ára skeið að fá Hermann til að spjalla við okkur um Tælandsárin sín en þar dvaldi hann lengi vel um tíma og dásamaði alla tíð. Hann var ófáanlegur til að tjá sig um þau ár fyrstu tvö árin en eftir að ljóst varð að ævisaga hans yrði rituð síðasta haust tók hann mun betur í ósk okkar um spjall og sagðist líklega tilkippilegur í sumar. Af því verður vitaskuld ekki.

Fararheill sendir aðstandendur innilegar samúðarkveðjur.