Langþráð ferð til Víetnam loks á döfinni? Kannski vænlegt að hinkra aðeins með þann túrinn.

Átök hafa átt sér stað milli lögreglu og mótmælenda víða í Víetnam síðustu vikurnar. Líklega þess skammt að bíða að allt sjóði upp úr.

Heimafólk í landinu virðist loks vera búið að fá nóg af kommúnistunum sem landinu ráða og hafa gert um áratugi. Gríðarleg spilling æðstu manna og alls kyns viðbjóður flotið upp á yfirborðið reglulega í þessu bláfátæka landi og svo virðist sem steininn hafi tekið úr í síðasta mánuði þegar stjórnvöld ákváðu að gefa kínverskum aðilum stórt landsvæði undir mengandi iðnað og án þess að greiða einn dong í skatta eða skyldur. Dong fyrir þá sem ekki vita er þjóðargjaldmiðill landsins.

Friðsöm mótmæli hafa farið fram í öllum stærstu borgum landsins síðasta mánuðinn en sökum þess að lögregla gerist sífellt harðhentari gagnvart mótmælendum hefur skorist alvarlega í odda að undanförnu.

Með tilliti til þess að þetta mun vera í fyrsta skipti sem svo fjölmenn mótmæli verða í landinu frá því að frelsishetjan Ho Chi Minh sendi Bandaríkjamenn heim eftir misheppnaða innrás, má leiða að því líkum að fólk hafi nú fengið nóg og sé reiðubúið að selja sig dýrt til að losna við spillingarpésa úr valdastóli. Spillingarpésa sem beygja sig í duftið í hvert sinn sem kínverskir aðilar vilja fá einhverju framgengt í Víetnam og hagnast duglega sjálfir á öllu saman.

Reynist það rétt er töluverð óöld framundan í landinu og þar sem lítt er varið í að heimsækja land þar sem lögregla og almenningur takast á reglulega er óvitlaust að halda á aðrar slóðir svona í bili.