Viti menn! Það er ekki bara í Mexíkó þar sem vopnaðir menn hefja skothríð sísona við vinsælan skemmtistað. Það gerist líka í Benídorm á Spáni.

Af sem áður var í Benídorm á Spáni. Mynd Policia Nacional

Jamm, Benídorm reynist ekki vera Brimborg sem, eins og allir vita, er öruggur staður til að vera á. Fyrir síðustu helgi hófst heljarinnar skothríð utan við einn vinsælasta skemmtistað borgarinnar eins og ekkert væri sjálfsagðara.

Þrír gestir særðust í skothríðinni sem spænska lögreglan telur hluta af uppgjöri milli tveggja gengja um yfirráð yfir fíkniefnasölu í borginni.

Aldrei áður hafa blekfullir ferðamenn orðið á milli í gengjastríði í Benídorm og má heita magnað að enginn lést í árásinni. En þar með er líka sakleysi Benídorm fyrir bí. Glæpagengi þar virðast ekki lengur víla fyrir sér að skjóta mann og annan og það á vinsælum skemmtistað á háannatíma. Og þar sem milljarða gróði af fíkniefnum liggur undir er líklegast óhætt að veðja á að þó þetta sé fyrsta slíka skotárásin á almannafæri í Benídorm, er þetta að líkindum ekki sú síðasta.