Norðmenn eru sérstakir eins og allir sem eytt hafa sekúndu við hlið eins geta staðfest. Og líklega hefði engum öðrum en Norðmönnum dottið í hug að meina ferðalöngum að greiða fyrir veitingar, hótel eða þjónustu með peningum.
Það er í fúlustu alvöru það sem NHO, stéttarfélag fólks í ferðaþjónustugeiranum í Noregi, vill gera og hefur gengið svo langt að þrýsta á norska þingmenn en lagabreytingu þarf til að hægt verði að meina fólki að nota peninga til að greiða fyrir þjónustu.
Aftenposten greindi frá þessu ofstæki fyrir tæpri viku síðan og fylgir sögunni að til séu þingmenn sem eru hlynntir slíkum gjörningi. Ástæðan er að með því að útiloka peningagreiðslur alfarið er hægt að loka mikið til eða alveg á svarta starfsemi í ferðamannageiranum.
Fararheill kallar þetta ofstæki vegna þess að það er það. Þarf ekki lengi að leggja haus í bleyti til að átta sig á að verði það einhvern tíma raunin að fólk geti ekki greitt fyrir hluti eða þjónustu með peningum eru ógnarmikil völd færð í hendur kortafyrirtækja og banka og þeir útilokaðir frá ýmsum lífsins hlutum sem hefur orðið á í messunni hvað fjármál snertir.








