Ef einhver ókunnugur bankar upp á hjá þér á næstu mínútu, bæði þig um að velja draumastaðinn þinn á ferðalagi og segði þér svo í kjölfarið að þú gætir farið í draumaferðina og fengir jafnvel greitt fyrir en þú yrðir að fara strax og hefðir aðeins þrjár klukkustundir til að ná vélinni. Hvað myndir þú gera?
Þetta er einkar skemmtileg spurning og segir töluvert mikið um fólk og hversu langt það er reiðubúið að ganga til að brjótast út úr ramma hversdagsins án þess að hafa mikinn tíma til umhugsunar. En þetta er auðvitað tilgangslítill partíleikur ef engin alvara er að baki enda fólk þá sallarólegt enda engin vél í raun að fara eftir þrjár klukkustundir á draumastaðinn þinn.
Nýjasta auglýsingaherferð ferðasöluvefsins Expedia snýst akkúrat um þetta en eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi fóru þeir í Miðgarð í New York, spurðu fólk um draumastaðinn og buðu þeim á staðinn ef fólk færi strax af stað.
Skemmtilegt og forvitnilegt.







