Búin að panta flug til Orlando á næstunni en ekki búið að niðurnegla gistinguna ennþá? Þá er óvitlaust að kíkja hingað og verða sér úti um góða nótt á góðu afsláttarverði. En flýtið ykkur. Það er aðeins í boði næstu klukkustundirnar.
Hér er um að ræða tilboð af hálfu hótelbókunarvefsins BookIt.com sem annars lagið alla mánudaga býður helmings afslátt á útvöldum hótelum. Oft er þar ekki um spennandi gististaði að ræða en að þessu sinni er barasta ekkert út á staðina að setja. Þvert á móti eru þeir mjög fínir og extra fínir þegar búið er að slá duglega af.







