Tíðindi

Vildarklúbbstilboð til New York

  15/02/2011nóvember 22nd, 2014No Comments

Vildarklúbbur Icelandair auglýsir nú sértilboð til New York en þangað er nú hægt að fljúga fyrir 25 þúsund vildarpunkta en það mun vera helmings afsláttur frá hefðbundnu verði þangað.

Býðst þetta tilboð aðeins frá miðnætti í kvöld 15. febrúar til miðnættis annað kvöld en glugginn til ferðarinnar er fyrirtak frá 1. maí til 17. júní.

Hafa ber í huga að tilboðið er aðeins fyrir félaga í vildarklúbbi flugfélagsins. Hægt er að skrá sig í þann klúbb hvenær sem er. Heimasíða Icelandair hér.