Ferðaskrifstofan Sumarferðir kynnir nú til sögunnar sérferð sína til Miami Beach á Flórída í Bandaríkjunum í apríl. Er það vel að íslenskar ferðaskrifstofur bjóði nýja og spennandi staði og ritstjórn Fararheill getur sannarlega mælt með nokkrum dögum á þessari frægustu strandlengju Flórída.
Ódýrasta verðið á þessari sérferð Sumarferða þar sem gist er í hótelíbúðunum Suites of Dorchester er 184.900 krónur á mann og þar sem ferðin er ekki í boði fyrir einstaklinga miðast verðin eðlilega við tvo. Samtals kostar ferðin því par eða hjón 369.800 miðað við ódýrustu gistingu.
Fari sömu hjón þá leiðina að kaupa far og gistingu á eigin spýtur kemur í ljós að fargjöld til Orlando með sama flugfélagi og sömu daga kostar parið 189.880 krónur eða 94.940 krónur á mann.*
Sé leitað á næstu hótelleitarvél að heildarverðum á Suites of Dorchester frá 2. til 10. apríl eða sömu daga og ferð Sumarferða fæst gisting þar í tveggja manna herbergi á samtals 136.317 krónur. Það gerir 68.158 krónur á mann.*
Þá eru eftir rútumiðar fram og til baka milli Orlando og Miami sem er innifalið hjá Sumarferðum. Fá má miða fram og tilbaka fyrir sjö þúsund á mann eða fjórtán þúsund samtals.
Heildarverð ferðarinnar er því 340.106 krónur. Það þýðir að spara má tæplega 20 þúsund krónur með að panta sjálfur sömu ferð og Sumarferðir bjóða.
* Miðað við verð á vef Iceland Express kl 20. þann 14. febrúar 2011..
* Miðað við verð á vef Vayama kl. 20:30 þann 14. febrúar 2011.
Heimasíða Sumarferða hér.






