Tíðindi

Óheyrilegur verðmunur hjá Icelandair

  14/02/2011nóvember 22nd, 2014No Comments

Heilli það Íslendinga að ferðast með Icelandair til Hamborgar í sumar er alls ekki sama hvaða daga fólk velur sér til þess ferðalags. Getur munurinn á sama flugfari daga á milli munað tæplega 50 þúsund krónum og munar sannarlega um minna.

Nú er tíminn til að panta sér flugferðir erlendis í sumar ætli fólk sér á eigin spýtur að upplifa ævintýrin erlendis. Nýir áfangastaðir eru eðlilega meira heillandi en þeir gömlu fyrir marga og er Hamborg einn af nýjum áfangastöðum Icelandair þetta sumarið. Þeir eru reyndar ekki einir um þá hitu því þýska flugfélagið Airberlin býður líka ferðir á milli Keflavíkur og Hamborgar.

En vænlegast er að hafa sveigjanlega dagskrá í fríinu því gríðarlegur verðmunur er á fargjöldum Icelandair daga á milli. Býður flugfélagið sérstaklega lág verð tvisvar í viku í sumar en sé ferðast fram og aftur á þeim fargjöldum fæst farið fyrir einstaklinginn lægst á 45.180 krónur svo dæmi sé tekið 3. – 14. júní.

Henti hins vegar dagarnir 5. – 18. júní fólki betur þarf að punga út hvorki meira né minna en 79.200 krónum en það er munur upp á 34.020 krónur á hvern miða.

Versnar þessi munur enn sé litið til júlí. Þar er til að mynda hægt að kaupa ódýrustu fargjöldin dagana 15. júlí til 2. ágúst á 45.180 krónur fram og til baka. Sé hins vegar einhver svo óheppin að þurfa að fara í fríið sitt 16. júlí til 4. ágúst greiðir viðkomandi 88.450 krónur fyrir. Þar munar 43.270 krónum.

Athygli vekur reyndar að ódýrustu fargjöld Icelandair til Hamborgar þetta sumarið er merkilega oft sömu daga og bestu tilboðsverð Airberlin eru í boði. Ódýrast fæst fargjald aðra leiðina með þýska flugfélaginu á 20.663 miðað við gengið 13. febrúar.

* Hafa skal í huga að verðbreytingar á vef flugfélaganna eru örar og því gætu sömu verð ekki fundist á vefsíðum þeirra síðar.