Tíðindi

Google vill gjörbylta ferðaleit á netinu

  13/02/2011nóvember 22nd, 2014No Comments

Langar þig með fjögurra manna fjölskylduna til Karabíska hafsins í sjö daga í september og vilt að ferðin kosti þig ekki meira en 300 þúsund krónur í heildina?

Innan nokkurra missera verður hægt að leita með slíku móti á netinu en þetta er framtíðarsýn risafyrirtækisins Google sem vill bylta ferðaleit á netinu og hefur þess vegna keypt fyrirtækið ITA Software en það er sama fyrirtæki og framleiðir þann hugbúnað sem velflestar flugleitarvélar og ferðaskrifstofur nota við flug- og hótelleit fyrir viðskiptavini sína.

Að nokkru leyti er Google þarna að feta í fótspor leitarvélarinnar Bing frá Microsoft sem selur ekki farmiða heldur sendir viðskiptavini beint inn á vefi flugfélaga og ferðaskrifstofa en leitarmöguleikar Google verða þó mun ítarlegri en Bing býður nú upp á.

Af þessu hafa fjölmörg fyrirtæki í þessum bransa áhyggjur enda getur Google notað ITA til að takmarka þær upplýsingar sem sendar eru öðrum flugleitarvélum svo dæmi sé tekið.

Hugmyndir Google gætu þó endað í ruslinu því samkeppnisyfirvöld í Bandaríkjunum skoða hvort kaupin brjóti í bága við ákvæði laga.