Tíðindi

Óljós framtíð flug- og hótelleitarvéla

  13/02/2011nóvember 22nd, 2014No Comments

Framtíð flug- og hótelleitarvéla þeirra sem skipta nú tugum á netinu og eiga að auðvelda viðskiptavinum sínum að finna hagkvæmustu fargjöldin eða gistingu eru nú nokkuð í uppnámi og óljóst hvort eða hverjar þeirra eiga framtíðina fyrir sér. Ástæðan er sú að flugfélög og hótel vilja í vaxandi mæli vilja fremur fá fólk inn á sína eigin vefi en utanaðkomandi vefi.

Mál bandaríska flugfélagsins American Airlines ber hvað hæst hvað þetta varðar en það flugfélag hyggst hætta að nýta sér kerfi það sem flugleitarvélar notast við til að leita uppi fargjöld flugfélaga um allan heim. Gangi það eftir munu fargjöld þess flugfélags ekki finnast við leit hjá flugleitarvélum.

Þetta stunda reyndar velflest flugfélög með einum eða öðrum hætti og hafa gert lengi. Bæði Icelandair og Iceland Express, svo dæmi séu tekin, bjóða reglulega upp á tilboð sem flugleitarvélar finna ekki og nægir þar að nefna heita pottinn hjá Iceland Express og sólarhrings- eða vildarpunktatilboð Icelandair.

Svo dæmi sé tekið býður Iceland Express þegar þetta er skrifað fargjald til Stanstead í London á 13.005 krónur í heita pottinum. Leitarvélin Dohop.is finnur sama flug lægst á 20.881 krónu og Momondo.com á 20.684 krónur.

Sama fyrirkomulag tíðkast hjá mörgum hótelum heimsins en hótelleitarvélar hafa verið gríðarlega vinsælar hin síðustu ár við leit að heppilegum gististöðum. Töluverður fjöldi þeirra bjóða sérstök tilboð á heimasíðum sínum sem ekki allar leitarvélar finna eða eiga að finna.

Þetta mun hafa í för með sér ef af verður að viðskiptavinir munu þurfa að leita töluvert meira sjálfir í stað þess að sækja heim einn vef eða tvo sé ætlunin að spara eins mikið og framast er hægt við ferðalagið.