Árið 2010 var slæmt ár hvað hákarlaárásir varðar. Þá urðu á heimsvísu 79 slíkar árásir á brimbretta- og sundfólk en aðeins sex þeirra reyndust banvænar fyrir þá sem fyrir urðu. Er þetta engu að síður mesti fjöldi tilkynntra árása hákarla í tíu ár.
Slíkar árásir eru fræðilega mögulegar víða þar sem ferðafólk kemur saman og nýtur hlýs loftslags með tilheyrandi sundsprettum.
Þeir staðir sem hættulegastir voru samkvæmt tölfræðinni á liðnu ári voru:
- Ástralía – 13 árásir
- Flórída – 12 árásir
- Suður Afríka – 6 árásir
- Norður Karólína – 5 árásir
- Kalifornía – 4 árásir
- Hawaii – 4 árásir
- Suður Karólína – 4 árásir
- Egyptaland – 3 árásir
- Bahamas – 1 árás
- Brasilía – 1 árás






