Bresk stjórnvöld afléttu í dag ferðaviðvörunum sínum til Egyptalands en þær tóku gildi þann 28. janúar síðastliðinn þegar mótmælin gegn Hosni Mubarak, einræðisherra landsins, stóðu sem hæst.
Telja Bretarnir nú öruggt fyrir ferðafólk að fara til Lúxor, Kaíró, Alexandríu og Súez enda er nú lífið á þessum slóðum öllum að komast í samt horf eftir nokkurra vikna mótmæli þar sem meðal annars var ráðist að erlendum ferðamönnum.
Íslenska utanríkisráðuneytið, sem segist fylgjast grannt með þróun mála, hefur ekki aflétt sinni viðvörun sem kom seint og um síðir þegar mótmæli stóðu sem hæst. Er þó hæpið að Íslendingar eigi meira á hættu en Bretar eða aðrir Evrópubúar í Egyptalandi.






