Loksins er komið að því! Virgin hefur formlega hafið sölu á farmiðum út í geiminn með Virgin Galactic geimferju sinni og pantanir óskast sóttar.
Er nú hægt að bóka flug með geimrellu Virgin út í geiminn og til baka en þar er um beint flug að ræða. Fyrir herlegheitin greiðast litlar 23,6 milljónir króna miðað við gengi dagsins.
Ekki ætlar Richard Branson, eigandi Virgin, að slá neitt slöku við í markaðssetningu á geimferðum sínum því erlendir miðlar greina frá því að einar 140 ferðaskrifstofur selji nú miða með Virgin Galactic.
Hér er hægt að bóka hjá Virgin.






