Jólahátíðin er vissulega dásamleg fyrir flest okkar en það er eins víst líka að hún tekur sinn toll. Toll sem ekki er víst að tveir, þrír frídagar nægi til að hlaða batteríin að nýju. En vika í sólinni á Fuerteventura strax eftir áramótin gæti dugað til.

Fuerteventura er ekki jafn gegnsósa af túrisma og nágrannaeyjurnar en sama sól og sami aðbúnaður. Mynd K.Gregory
Breska ferðaskrifstofan Travel Interaction er nú að bjóða sérdeilis fínar ferðir til Fuerteventura, sem er ein Kanaríeyja, strax eftir áramótin niður í 74 þúsund krónur á mann miðað við tvo á fjögurra stjörnu hóteli með öllu inniföldu. Það gerir auðvitað samtals 148 þúsund á par eða hjón og negli fólk flug til Bretlands og heim aftur fyrir 25 þúsund krónur á mann eins og finnst á nokkrum dagsetningum hjá Wow Air og easyJet fæst ferðin fram og aftur í heildina undir 200 þúsund krónum.
Vissulega leiðindi að millilenda en fyrir vikið fæst sólarferð vel undir því verði sem innlendar ferðaskrifstofur eru að bjóða. Til samanburðar er lægsta verð sem finnst á fjögurra stjörnu hóteli með öllu inniföldu á Tenerife með Heimsferðum í viku í janúar að kosta manninn 173 þúsund eða 346 þúsund samtals. Það er sparnaður upp á 146 þúsund krónur til eða frá.
PS: ef þú kemst ódýrt til London á morgun, fimmta desember, geturðu rúllað þér í sömu vikuferð strax þann 6. desember í vikutíma fyrir 58 þúsund krónur frá Bretlandi á mann.







