Bandarísk yfirvöld hafa gefið út viðvörun til þeirra sem hugsanlega ætla í frí til Mexíkó næstu misserin. Sökum síversnandi ástands í fjölmörgum bæjum og borgum er fólki ráðlagt að fara annað í frí sín að svo stöddu.

Ekki er hollráð að þvælast um allt í Mexíkó þessa stundina og er eindregið varað við þvælingi við landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna
Mexíkó er orrustuvöllur fyrir glæpagengi og fíkniefnasala og finnst vart lengur sá staður í landinu þar sem nokkur er óhultur með öllu. Þó hafa allra vinsælustu ferðamannastaðirnir, Cancún og Acapulco sloppið að mestu hingað til.
Fari fólk þrátt fyrir allt er því ráðlagt að vera aðeins á ferli á daginn og forðast mannþröng eða mótmendagöngur sem víða fara fram.







