Flestar íslensku ferðaskrifstofanna bjóða landsmönnum upp á siglingar um heimsins höf og hafa slíkar ferðir notið nokkurra vinsælda hin síðari ár.
Það skýtur þó afar skökku við að uppgefin verð þeirra á slíkum ferðum hafa ekkert breyst frá því í haust þrátt fyrir að þegnar annarra þjóða fái nú daglega hver gylliboðin á fætur öðru send í pósthólf sín.
Þannig hafa verð fyrir siglingar yfir línuna lækkað um 25 prósent að lágmarki í Bandaríkjunum og Bretlandi frá því í nóvember og stöku ferðir seljast nú á helmingi lægra verði en fyrir fjórum mánuðum.
Íslensku ferðaskrifstofurnar virðast enn sem komið er enga ástæðu sjá til að lækka sín verð í samræmi við það sem gerist erlendis. Vakna því eðlilega spurningar um hvort þær íslensku séu yfir höfuð á tánum fyrir viðskiptavini sína.






