Að heimsækja Aþenu án þess að skoða hina stórmerku Akropolis er svipað og að fara til Benídorm og sjá aldrei til sólar. Akropolis er þó lokað eins og sakir standa vegna verkfalls starfsmanna.
Það er því ráð að fresta Grikklandsferðinni að svo stöddu vegna þess að verkfall öryggisvarða við musterið hindrar ferðamenn að skoða undrið.
Hefur verkfallið nú staðið í eina viku og virðist fátt benda til að það leysist á næstunni. Er kannski ekki að furða að starfsmenn vilji eitthvað fyrir snúð sinn enda hanga flestir þeirra úti 10 tíma dag hvern við að aðstoða mispirraða ferðamenn.







