Fyrir hálfum sólarhring eða svo birtist auglýsing frá Heimsferðum um sérdeilis frábært flugtilboð til Alicante á fésbókarsíðu fylgjenda. Níu þúsund og níu hundruð krónur aðra leið til Alicante. Frábært tilboð í flesta staði.

Virkilega flott tilboð en ekki orð um hvenær það gildir eða hvar það sé að finna. Skjáskot
Við segjum í flesta staði sökum þess að nákvæmlega engar upplýsingar koma fram í auglýsingu Heimsferða um hvenær þessi fantatilboð gilda, hvar þau finnast né hvaða tímabil þau ná yfir.
Ekki bætir úr skák að Heimsferðir skiptu yfir í nýjan og flottan vef í vor sem leið en fyrirtækið heldur enn úti gamla vefnum og ekki er orð um að tilboðið umrædda finnst aðeins á gamla vefnum.
Ekki nóg með það: tilboðið frábæra á aðeins við um flug aðra leiðina út þann 5. júlí, 8. júlí og 10. júlí
Takið eftir á meðfylgjandi skjáskoti að hvergi kemur fram hvenær tilboðið á að vera, hversu mörg sæti eru í boði né hvort tilboðið er í boði í nokkrar sekúndur eða nokkra sólarhringa.
Eðlilega er fólk þarna úti sem leitar á „nýjum“ vef Heimsferða og finnur ekkert flug aðra leið undir 29.900 krónum. Hvers vegna fyrirtækið setur tilboðssæti sín fram á sínum gamla vef er óskiljanlegt og reyndar alls óskiljanlegt hvers vegna fyrirtækið heldur úti bæði nýjum og gömlum vef.
Blekkingar eða vitleysisháttur?







