Ein allra skemmtilegasta hátíð Evrópu verður minna skemmtileg þetta árið. Það skýrist af hættunni á hryðjuverkum sem hefur það í för með sér nú að öryggisgæsla verður stórefld frá því sem verið hefur.

Fyrsta sinni verður sérstök öryggisleit við alla innganga inn á hátíðarsvæði Októberfest í Munchen þetta árið. Mynd Herb Nestler
Það er ekkert skrýtið að Þjóðverjar hafi áhyggjur af þessari stærstu hátíð Evrópu en Októberfest í Munchen sækja heim sex milljónir manna að meðaltali ár hvert. Það ákjósanlegt skotmark hryðjuverkamanna og ekki bætir úr skák almenn reiði meðal Þjóðverja á hátterni flóttamanna um áramótin í Köln og víðar þar sem óprúttnir gengu í skrokk á kvenfólki á götum úti og töluverðum fjölda kvenna var nauðgað.
Hátíðarnefndin hefur því ákveðið að fyrsta sinni nú verði sérstök öryggishlið við alla innganga að hátíðinni og fólk skannað í bak og fyrir við þá alla. Sömuleiðis munu vopnaðir verðir verða áberandi í bjórtjöldunum en hingað til hefur það ekki verið raunin heldur.
Lítill vafi leikur á að slíkt mun hafa oggupons neikvæð áhrif á upplifun gesta á þessari dúndurskemmtilegu hátíð. Hún hefst þetta árið með pompi og prakt þann 17. september og lýkur þann 3. október.







