Tíðindi

Vetrartilboð Ryanair

  19/09/2009maí 11th, 2014No Comments

Írska lágfargjaldaflugfélagið Ryanair hefur hafið sölu tilboðsferða í október og desember á vef sínum en aðeins er hægt að versla á tilboðskjörum til miðnættis þann 21.september.

Um er að ræða ferðir aðra leið en tugir áfangastaða eru í boði frá fjórum borgum í Bretlandi og á Írlandi. Prísinn fyrir flugið sérdeilis góður eða 2100 krónur en hafið ávallt í huga að Ryanair tekur gjald fyrir nánast allt annað sem oftar en ekki hækkar gjaldið töluvert. Getur þannig kostað allt að fimm þúsund krónur í viðbót að taka með sér fleiri en eina tösku svo dæmi sé tekið.

Tilboðið engu að síður frábært og með þessum fyrirvara er einnig hægt að komast á sæmilegum kjörum til Englands með Icelandair, Iceland Express, SAS eða AirBerlin.