Heimsferðir auglýsa nú fjögurra nátta tilboðsferð til Búdapest í Ungverjalandi frá 22. október til þess 26. Prísinn 69.900 krónur og ekki þarf að spyrja að því að um allra síðustu sætin er að ræða.
Um er að ræða flug og gistingu í þessari fallegu en fátæku borg. Verðmiðinn er 17.475 hver sólarhringur og verður að teljast allbærilegt tilboð. Hægt er að gera ágæt kaup í Búdapest enda ungverska forintan í sama foraði og íslenska krónan.






