Ferðalangar á Spáni og Grikklandi ættu að hafa annað augað á fjölmiðlum þessa dagana því ella er hætt við að menn komist ekki sína leið. Á Spáni eru verkföll hjá flugmönnum Iberia flugfélagsins og jafnframt meðal hluta starfsmanna á flugvöllum landsins og engar ferjusiglingar eru í gangi í Grikklandi vegna verkfalls starfsmanna þar.
Þar er fúlara en frá þurfi að segja að verða að snarbreyta ferðatilhögun vegna skyndiverkfalla eða vegna þess að starfsmenn erlendis eru ósáttir við kaup og kjör.
Allmargir Íslendingar brúka Iberia til að komast til Suður Ameríku svo dæmi séu tekin og það er dýrt spaug að skipuleggja ferð þangað til þess eins að verða strandaglópur á Barjas í Madríd.
En þó Iberia hafi þurft að hætta við hundruðir flugferða sinna í gær er langt í frá að hættan sé liðin hjá. Flugmennirnir hyggjast leggja niður störf í allt að 30 daga eftir þörfum fram til júní.
er verra að vera í Grikklandi þar sem 48 stunda vinnubann var ákveðið af starfsmönnum á ferjum þeim er sigla um grísku eyjarnar. Því alltaf er hægt að skipta um flugfélag en ætli menn út í aðrar eyjur en Santorini og Krít, sem hafa eigin flugvelli, er ekki komist til eða frá meginlandinu með neinum hætti.
Er þetta enn eitt áfallið fyrir Grikkina því ferðamannatímabilið þar er hafið og það síðasta sem þeir þurfa á að halda í viðbót við allt annað eru fúlir ferðamenn sem væntanlega segja sínar farir óslettar þegar heim er komið.






