Svo virðist sem bæta megi þjónustu íslenskra fararstjóra til mikilla muna ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar Fararheill. Þar telja aðeins 51 prósent svarenda íslenska fararstjóra erlendis almennt standa sig vel.

Til að góð ferð verði frábær þarf góða reynslumikla og dásamlega fararstjóra. Töluvert vantar upp á það samkvæmt könnun
Reynsla ritstjórnar Fararheill er sú að íslenskir fararstjórar almennt séu í daprari kantinum og geri aðeins það allra nauðsynlegasta í mörgum hópferðunum í stað þess að ganga skrefinu lengra í þjónustu og yndislegheitum.
Vefkönnun sýnir að fleiri eru þessarar skoðunar. Telja aðeins 51 prósent þeirra 326 sem atkvæði greiddu að þjónusta fararstjóra almennt sé góð. Önnur 22 prósent segja hins vegar sína reynslu af fararstjórum almennt slæma meðan 27 prósent skipuleggja sínar eigin ferðir og þurfa því ekki á fararstjórum að halda.
Með fullri virðingu fyrir þeim fjölda fólks í fararstjórastétt sem sannarlega kann sitt fag og hefur bæði reynslu og þekkingu til að gera góða ferð frábæra væri það áfall fyrir hverja stétt, ef frá eru taldir Alþingismenn, að einungis helmingur viðskiptavina teldi þjónustuna góða.
Vefkönnunin er á engan hátt vísindaleg og ber að taka niðurstöðunum með ákveðnum fyrirvara. Engu að síður gefur hún vísbendingar um stöðu mála.
Ritstjórn þakkar góða þátttöku og bendir á að ný könnun er komin á vefinn.







