Tíðindi

Hertar öryggiskröfur gera illt verra

  08/04/2012janúar 9th, 2015No Comments

Fararheill greindi frá því fyrir skömmu að á vef breska tímaritsins Economist færu fram rökræður og könnun um hvort allar þær öryggisráðstafanir sem gerðar hafa verið á flugvöllum heimsins í kjölfar hryðjuverkaárásanna 11. september 2001 hefðu raunverulega gert farþegaflug öruggara.

Nú liggur niðurstaðan fyrir og hún er afgerandi. Auknar öryggiskröfur hafa aðeins gert illa verra og öryggi er ekki meira nú en áður að mati 87 prósenta þeirra sem þátt tóku.

Það er stórmerkileg niðurstaða ein og sér en ennþá meira með tilliti til að gera má ráð fyrir að meirihluti þeirra sem þátt tóku séu Bretar og jafnvel Bandaríkjamenn sem hafa hingað til sætt sig við sífellt harðari lög og reglur og hvergi eru raðir lengri en á flugvöllum í þessum tveimur löndum.

Á það er bent að þrátt fyrir ellefu ára stanslausa baráttu við að auka öryggi og koma í veg fyrir að klikkaðir einstaklingar komist um borð í farþegavélar hefur ekki einu sinni á þessum tíma komist upp um einn einasta hryðjuverkamann.

Á hinn bóginn hefur tekist að ráða niðurlögum tveggja eða þriggja einstaklinga sem höfðu illt í hyggju en í öllum tilfellum voru þeir aðilar komnir um borð í vélarnar og engin öryggistól á flugvöllum dugðu til að hefta það.

Það síðasta úr þessum geira er að nokkrir sérfræðingar vestur í Bandaríkjunum telja sig hafa fundið leið til að smygla vopnum gegnum líkamsskanna þá er nú eru notaðir víða í vesturheimi. Sé það rétt er búið að eyða tugmilljörðum til lítils.

Rökræðan og könnun Economist er fróðleg lesning öllum þeim er láta sig öryggismál í flugi varða. Hún finnst hér.