Tíðindi

Veisluhöld hjá Úrval Útsýn

  12/05/2011desember 4th, 2014No Comments

Lofað er mikilli skemmtun í Lágmúla í höfuðborginni laugardaginn 14. maí en þá ætlar Úrval Útsýn að bjóða til ferðahátíðar eins og það er kallað. Stendur sá mikli viðburður yfir frá klukkan 13 til 16.

Fyrir utan skemmtiatriði, tónlist og pulsur er hugmyndin auðvitað að kynna og selja ferðir Úrval Útsýn, Plúsferða og Sumarferða en þær eru allar í eigu Iceland Express sem aftur er í eigu Pálma Haraldssonar.

Af þessu tilefni eru í boði nokkrar ferðir ferðaskrifstofanna með afslætti en sá hængur er á að þær verður að bóka fyrir sunnudaginn 15. maí.

Meðal þess sem í boði er nú er 15 þúsund króna afsláttur á mann í ferðir til Tenerife á völdum dagsetningum. Þá bjóða Plúsferðir svokallað Sólarlottó til Almería og Sumarferðir sömuleiðis með tilboð til Almeríu.