Tíðindi

Flugstjóri neitaði að fljúga með múslima

  12/05/2011desember 4th, 2014No Comments

Miklar umræður hafa nú skapast á veraldarvefnum um þá ákvörðun flugstjóra hjá Atlantic Southeast flugfélaginu í Bandaríkjunum að neita að fljúga með tvo múslima um borð. Var vélin farin frá flugstöðinni og reiðubúin fyrir flugtak þegar flugmaðurinn ákvað þetta og snéri við.

Þannig olli flugstjórinn öllum öðrum farþegum verulegum töfum fyrir utan að sýna múslimum fádæma ókurteisi enda höfðu báðir umræddir menn farið gegnum öryggisleit eins og aðrir og það meira að segja tvívegis.

Var aftur leitað á mönnunum eftir að vélinni var ekið aftur að flugstöðinni í Memphis en ekkert fannst þá heldur. Flugstjórinn hélt samt fast við sinn keip og mennirnir komust ekki með.

Fréttastöðin CNN segir frá því að báðir mennirnir hafi verið á leið til Charlotte á ráðstefnu um fordóma í garð múslima. Þar hafa þeir haft frá mörgu að segja.