Eftir rétt rúmlega tólf mánuði lokar hinn frægi vatnsleikja- og skemmtigarður Wet´n´Wild í Orlandó í Flórída dyrunum fyrir fullt og allt.

Síðustu forvöð að skella sér í skemmtigarðinn Wet´n´Wild. Mynd Wet´n´Wild

Síðustu forvöð að skella sér í skemmtigarðinn Wet´n´Wild. Mynd Wet´n´Wild

Ástæðan er sú að Universal Studios sem eiga or reka samnefndan skemmtigarð skammt frá ætla sér að byggja nútímalegan vatnsleikjagarð á Universal svæðinu. Sá bæði mun stærri og fjölbreyttari en Wet´n´Wild og þykir ljóst að ekki sé pláss fyrir tvo slíka nánast hlið við hlið.

Þetta eru ákveðin tímamót því Wet´n´Wild var fyrsti skemmtigarður sinnar tegundar á sínum tíma og margir vilja meina að sá garður hafi komið Orlando á blað sem áfangastað ferðafólks.

Ekki þarf þó að örvænta mikið. Fyrir utan nýjan vatnsleikjagarð Universal eru í Flórídafylki öllu rúmlega 30 slíkir vatnsleikjagarðar þó ekki séu þeir jafn þekktir og sá í Orlando.