Það er varla flett neinu örþunnu íslensku dagblaði þessi dægrin án þess að rekast á greinar um gott gengi flugfélagsins Icelandair. Það er barasta allt á þvílíku blússi að hluthafar eiga fullt í fangi með að telja gróðann upp til skatts.
Það er sannarlega merkilegt. En annað merkilegt, sem enginn fjallar um nema Fararheill, er sú staðreynd að á sama tímabili og flugfélagið rís hraðar en Fönix úr öskunni á hlutabréfamarkaði fer þjónusta flugfélagsins enn hraðar versnandi. Ekki aðeins tekur þjónustudeild flugfélagsins sér nú allt að 30 dögum að svara viðskiptavinum sínum og jafnvel töluvert lengur ef fólk er að krefjast bóta, heldur fellur einkunnagjöf Icelandair meðal farþega sinna jafnt og þétt samkvæmt alþjóðlegum einkunnamiðlum á borð við Skytrax. Þar mælist Icelandair nú miðlungs flugfélag á niðurleið.
Vaxtaverkir gæti einhver sagt til að útskýra hvers vegna þjónusta við viðskiptavini versnar óðum á sama tíma og flugfélagið fyllir hverja sína vél upp í rjáfur daginn inn, daginn út. Það er hægt að kaupa þær mótbárur við fyrstu sýn. Hraður vöxtur virðist meira að segja hafa komið forsvarsmönnum á óvart og rekstraráætlunum verið breytt til hins betra skömmu eftir að þær eru gerðar opinberar.
En þó ekki. Það er auðvelt að ráða og þjálfa gott starfsfólk til þjónustustarfa á skömmum tíma. Það hefur ekki gerst. Enn þann dag í dag hefur þjónustudeild Icelandair ekki undan eins og kvartanir á samfélagsmiðlum sýna og sanna.
Fararheill er með aðra kenningu um dapra þjónustu. Á meðan hluthafar hlæja í bankanum og reyndar heima hjá sér líka þá er aðra sögu að segja um fólkið á gólfinu. Starfsfólk Icelandair er frekar illa launað og hefur ekki notið mjög góðs af gríðarlegum hagnaði flugfélagsins. Kannski eðlilegt. Alltaf hægt að skipta um starfsfólk og ráða jafnvel erlent starfsfólk ef innlenda liðið er með vesen. Það er til dæmis það sem Icelandair Ground Services íhugar nú að gera. Þar er kaupið svo lágt að enginn fæst í störfin á Keflavíkurflugvelli. Nema kannski erlendis frá.
En það er handónýtt að vera með kenningar ef það er ekkert kjöt á bakvið. Kjötið í þessu tilfelli kemur úr árlegum könnunum VR. Könnunin sem svo er breytt í lista yfir Fyrirmyndarfyrirtæki landsins og finna má á vef VR.
Eitt af því sem þar er spurt um er ánægja fólks með launatekjur. Og þar situr Icelandair aftast á meri. Starfsfólk á bensínstöðvum N1 og starfsfólk Sláturfélags Suðurlands er mun ánægðara með launakjör en starfsfólk Icelandair. Flugfélagið er reyndar næstneðst á lista yfir ánægju starfsmanna með laun sín á undan bílafyrirtækinu Heklu. Sama fyrirtækis og selur okkur Volkswagen með falsaða mæla.
Hljómar þetta svo fráleitt. Ef fólkið á gólfinu finnst það vera lítils virði er engin gulrót til staðar til að sýna viðskiptavinum lit. Engir brauðmolar hjá Icelandair sem sagt.








