Eitthvað hafa breskir leyniþjónustumenn komist á snoðir um. Fyrr í dag var tekin sú ákvörðun í breska utanríkisráðuneytinu að seinka öllu vélum á leið til Bretlands frá sumarleyfisparadísinni Sharm el Sheikh í Egyptalandi.

Plantaði ISIS sprengju um borð í rússnesku farþegavélinni? Mynd ITV

Plantaði ISIS sprengju um borð í rússnesku farþegavélinni? Mynd ITV

Seinkunin á að gera breskum lögreglumönnum kleift að yfirfara allar breskar farþegaþotur áður en þær fara í loftið frá Egyptalandi en samkvæmt BBC leikur grunur á að sprengja um borð hafi grandað rússnesku þotunni sem fórst á þessum slóðum fyrr í vikunni.

Hvort það aftur tengist því að hryðjuverkasamtökin ISIS hafa lýst ábyrgð á því ódæði á hendur sér skal ósagt látið en ýmislegt bendir til að það geti staðist. Í fyrsta lagi hefur ISIS hingað til ekki verið að monta sig af ódæðum sem þeir hafa ekki komið nálægt og í öðru lagi voru Rússar fyrirtaks skotmark því aðeins eru nokkrar vikur síðan her Rússa hóf að sprengja mann og annan í Sýrlandi. Og ekki eru Bretar í miklu uppáhaldi heldur.