Það líður brátt að því að þeir sem vilja njóta góðrar jónu í góðum félagsskap geta gert það aldeilis óhræddir á Írlandi.
Þetta tilkynntu stjórnvöld í landinu fyrir stuttu. Áfram verður glæpsamlegt að græða á fíkniefnum með einum eða öðrum hætti en notendur eiga að gera verið í friði með lítið magn efna. Það gildir helst um veikari efni á borð við hass eða kannabis en Írarnir ganga reyndar lengra en það. Harðari efni eins og kókaín og heróín má líka neyta í framtíðinni í landinu en þó með ákveðnum skilmálum og aðeins á sérstökum stöðum þar sem fagfólk er til staðar.
Það þarf því ekki að æða alla leið til Amsterdam eða eitthvað enn lengra fyrir þá sem kjósa frelsi í þessum málum. Og líklega mun þetta auka straum „ferðamanna“ frá Norður-Írlandi yfir til Írlands því áfram er blátt bann við öllu hjá Bretunum í norðri.
Þess má geta fyrir efasemdarmenn að allar þær heimsendaspár sem birtar hafa verið frá þeim er telja afglæpavæðingu eða lögleiðingu fíkniefna hið versta mál hafa verið duglega afsannaðar. Heilt yfir gengur allt afar vel í þeim fylkjum Bandaríkjanna þar sem kannabis hefur verið leyft og í Portúgal hefur algjör afglæpavæðing ekki breytt þeirri þjóð í heilalausa vesalinga. Þvert á móti verður minna vart við fíkniefni í borgum landsins en raunin var áður.








