Bandaríska innanríkisráðuneytið hefur varað þegna landsins við að sækja jólamarkaði í Evrópu þessa vertíðina. Ástæðan sögð sterkar líkur á að hryðjuverkamenn láti til skarar skríða.

Hugsanlegt skotmark hryðjuverkamanna? Kaninn varar sitt fólk við ferðum á jólamarkaði í Evrópu. Mynd D.Simon
Það var svo sem eftir öðru að misyndismenn sæu þar tækifæri og þarf engan að undra. Næsta vonlaust er að vakta tugþúsundir gesta sem njóta jólagleði á vinsælustu mörkuðum Evrópu. Alveg kjörinn vettvangur fyrir blóðbað og glundroða og aðeins þarf slíkt að takast einu sinni til að markaðsmenn í álfunni pakki alfarið saman með tilheyrandi fjárhagslegu tapi fyrir heimafólk og unaðstapi fyrir ferðafólk. Það er jú fátt indælla en skrölta í rólegheitum um góðan jólamarkað.
Einn stærsti jólamarkaður Evrópu í Strassborg opnar formlega á föstudaginn kemur og fyrr í vikunni handtók franska lögreglan fjóra aðila sem taldir eru hafa ætlað að gera óskunda við það tækifæri. Borgaryfirvöld sögð íhuga að fresta og jafnvel hætta við opnun samkvæmt síðustu fregnum úr þarlendum fjölmiðlum.







