Það vita allir eldri en tvívetra að sagan endurtekur sig. Nú virðast markaðsmenn ytra aftur farnir að fá áhuga á öfugri sálfræði til að koma vörum og þjónustu á framfæri.

Gott dæmi um þetta er mjög umdeilt kynningarmyndband frá ferðamálaráði Tælands sem ber heitið „Ég hata Tæland.“ Myndbandið ekkert ýkja merkilegt per se en þeir sem ekki ganga heilir til skógar í toppstykkinu gætu látið blekkjast. Kemur enda ekkert fram annað en að þarna sé erlendur ferðamaður að kvarta sáran yfir hörmungartíð í landinu.

Vælið er þó ekki meira sannfærandi en svo að glöggir fréttamenn erlendis voru fljótir að átta sig á að um auglýsingu væri að ræða. Sem ferðamálaráð landsins staðfesti svo í kjölfarið.