Ok! Góðu fréttirnar fyrst. Frábært hjá Vita að bjóða annars lagið upp á ferðir til hinnar heillandi Kúbu. Slæmu fréttirnar: ferðin nú fáránlega dýr, allt of stutt og enginn nær að njóta neins.

Of margir ljúfir staðir, of lítill tími. Mynd Mat
Þetta mun ekki í fyrsta skipti sem við sendum skot á Vita vegna Kúbuferða ferðaskrifstofunnar. Það eru fjölmargir Íslendingar sem dreymir um að eyða tíma á þessari karabísku eyju en þegar loks kemur að ferð þá eru mínusarnir fleiri en plúsarnir.
Þessi páskaferð er tíu daga túr en þar af aðeins níu dagar á Kúbu. Heill dagur fer í brun um Toronto í Kanada þaðan sem flogið er til Varadero. Túrinn kostar manninn 519.900 krónur eða litla eina milljón og fjörutíu þúsund krónur á parið. Það þýðir að hver einasti dagur á þessari bláfátæku eyju, þar sem ekkert kostar neitt sem heitið getur, kostar manninn tæplega 60 þúsund kall!!!
Að vissu leyti er þetta fínt prógramm hjá Vita. Flakkað er um eynna og komið við á nokkrum frábærum merkisstöðum eins og í Santa Clara, Cienfuegos, Trinidad og Viñales svo ekki sé minnst á Havana og Varadero.
Gallinn hins vegar sá að það er stíft prógramm hvern einasta dag nema einn. Aðeins einn sólarhring getur fólk „frjálst“ um höfuð strokið og sleikt sólina á Varadero. Það er að segja sólarhringur til afslöppunar því alltaf er spenna í mannskapnum þegar þvælst er um ókunnugt land í rútu. Til dæmis er flakkað nokkuð um slóðir Hemingway´s sem hér eyddi töluverðum tíma sínum við að njóta út í æsar. En farþegar Vita fá lítinn tíma til þess. Það er fram og aftur alla daga, söfn og sósíalismi og eitthvað matarkyns inn á milli.
Kannski ágætt að fá þennan eina sólarhring til slökunar og sólbaðs áður en haldið er heim. Það bíður jú ekki aðeins fjögurra tíma flug til Toronto og sex tíma bið á flugvellinum þar áður en við tekur næturflug heim á klakann.
Fjórtán dagar í slíkum túr algert lágmark og sömuleiðis er fráleitt að heimta hálfa milljón króna á kjaft fyrir svo dapurlegan túr um yndislegan stað. Sex hundruð þúsund krónur á parið væri eðlilegt verð á slíkum pakka ef einhver spyr okkur.







