Einhvern tímann hefði það þótt stórmerk saga til bæjar að geta flogið til Barcelóna og heim aftur undir 20 þúsund krónum. Þó ekki sé það stórmerk saga lengur er það engu að síður skrambi góður díll og hann í gildi næstu fjóra mánuði.

Ljúf og góð að vetrarlagi sem sumri. Mynd Jose Manuel Romero

Ljúf og góð að vetrarlagi sem sumri. Mynd Jose Manuel Romero

Það er Wow Air sem þetta er að bjóða á tilteknum dagsetningum og leit okkar á vef flugfélagsins leiðir í ljós að töluvert er til af sætum á þessu verði. Héðan hægt að skottast fyrir 8.998 krónur og heim fyrir litlu meira og báðar leiðir kringum átján þúsund krónur.

Hér auðvitað fylgir ekkert með nema handtaska en hver þarf svo sem meira en það. Í öllu falli hægt að græja tösku með og samt komast þetta fyrir rúmlega 25 þúsund krónur á kjaft.

Enginn ætti að blása á Barcelóna að vetrarlagi. Meðalhitastig í borginni yfir dimmustu mánuðina rokkar milli tíu og tólf stiga. Það hljómar kannski veimiltítulegt á spænskan mælikvarða en ágætt að hafa í huga að meðalhitastig á Íslandi að sumarlagi fer ekki mikið hærra en það 🙂