Það var hreint ekki óalgengt fyrir aðeins tveimur til þremur árum síðan að finna ágæta gistingu á vinsælum strandstöðum Kanaríeyja niður í fimm til sex þúsund krónur per nótt á annatíma. Það nú liðin tíð.

Dýrara að gista hér nú en verið hefur um margra ára skeið.
Fyrir einu og hálfu ári síðan spáðum við því að verðlag á vinsælum ferðamannastöðum Spánar myndi hækka töluvert á næstu misserum. Það þurfti engan Sherlock Holmes til að sjá það fyrir því þorri vestrænna ferðamanna vill helst af öllu vera öruggur á ferðalögum og með vaxandi óöld á öðrum vinsælum ferðamannastöðum á borð við Egyptaland, Túnis, Tyrkland og Grikkland mátti ljóst vera að Spánn yrði fyrir valinu hjá mun fleirum en áður.
Þetta hefur sannarlega komið á daginn. Samkvæmt úttekt spænska bankans BBVA hefur erlendum ferðamönnum fjölgað um 30% frá árinu 2010 og þar af 18 prósent á síðustu tveimur árum. Ferðamönnum á Spáni hefur fjölgað um heila milljón aðeins á síðustu tólf mánuðum.
Sem að stórum hluta er ástæða þess hve gistinætur á stöðum eins og Playa del Ingles á Kanarí eða Playa de las Americas á Tenerife eru dýrari nú en verið hefur um langa hríð. Eftirspurn er mun meiri og á köflum umfram framboð. Sem merkir að hóteleigendur geta hækkað prísa sína nánast eftir geðþótta án þess að hafa miklar áhyggjur.
Sama gildir um staði á borð við Mallorca, Ibiza og Cadiz en á þeim öllum hefur erlendu ferðafólki fjölgað ört á skömmum tíma.
Það hefur því aldrei verið sterkari ástæða til að negla hótel með eins löngum fyrirvara og mögulegt er ef halda á suður í sólina á næstunni. Verð á einu og sama herbergi á sæmilegu hóteli á vinsælum stöðum getur hækkað um allt að tíu þúsund krónur á sólarhring þegar verst lætur.







