Ólíkt því sem oft vill brenna við hérlendis hjá vængbrotnum eftirlitsstofnunum hikar opinbera norska neytendastofnunin, Forbrukerrådet, ekki við að vara neytendur í Noregi við fyrirtækjum sem ekki standa sig í stykkinu. Það á til dæmis við um írska flugfélagið Ryanair.
Ryanair hefur um nokkurra ára skeið flogið frá Noregi til ýmissa landa en ástæða þess að neytendur eru varaðir við að eiga viðskipta við flugfélagið er hversu illa gengur að fá bætur frá flugfélaginu þegar eitthvað fer úrskeiðis. Hefur flugfélagið að mestu virt að vettugi norskar reglur um skaðabætur vegna tafa eða niðurfellingu flugs.
Af 88 kvörtunarmálið sem borist hafa eftirlitsstofnunum vegna verulegra tafa eða niðurfellingu flugs eru fimmtán mál þar sem ekki hefur tekist að fá bætur eins og reglur kveða á um. Í tíu skipti af þessum fimmtán er það Ryanair sem ekki sýnir lit.






