Sé einhver ein tegund pakkaferða sem sérstaklega hefur sótt í sig veðrið hin síðari árin þá eru það svokallaðar „allt innifalið“ ferðir þar sem gist er á hóteli þar sem hlaðborð er í boði frá morgni til kvölds án aukagjalds. Slíkt er þó kannski ekki svo gáfulegt fyrir þá sem vakta línurnar.

Vígalegt hlaðborð á hóteli í Karíbahafi. Finnist fólki maturinn vera „ókeypis“ er nokkur hætta á að borða meira en ella og þyngjast á ferðalögum
Könnun meðal tvö þúsund breskra ferðamanna sem dvalist höfðu á „allt innifalið“ hóteli í fríi á síðasta ári sýnir að fólk að meðaltali bætti á sig 3,6 kílóum í fríinu. Fjórðungur bætti á sig fleiri kílóum en það.
Reyndust það vera áfangastaðir í Bandaríkjunum þar sem erfiðast reyndist að halda sig frá matnum enda skammtar þar í landi stórir í meira lagi eins og margir Íslendingar hafa kynnst gegnum tíðina. Ekki bætti úr skák að úrval rétta á hlaðborðum bandarískra hótela voru einnig fjölbreyttari en annars staðar.
Aðrir sökudólgar, ef sökudólga er hægt að kalla, voru hótel í Karabíhafinu en meirihluti gististaða þar bjóða einmitt „allt innifalið“ pakka. Slíkir pakkar voru lengi vel alls ekki í boði á hótelum í Evrópu en það er að breytast og víða á Spáni og Ítalíu og í Tyrklandi eru slíkir pakkar í boði fyrir ferðafólk.
Óvíst er hvort 3,6 kíló er svo ýkja slæmt hins vegar þar sem engin samanburðarkönnun hefur verið gerð á hvort hinir sem ekki borðuðu sig pakksadda á „allt innifalið“ hótelum bættu minna á sig.
Það er reyndar eitt enn sem er vandamál við hlaðborð almennt og þá sérstaklega í heitari löndunum þar sem hreinlæti er upp og niður. Þau geta verið gróðrarstía fyrir bakteríur og annan vibba og valdið því að fleira fyllist en mallakúturinn.







