Tíðindi

Icelandair að gengisfella vildarpunkta fólks?

  17/04/2012No Comments

Er Icelandair að gengisfella vildarpunka almennings svo lítið beri á? Það fullyrða nokkrir aðilar sem hafa haft samband við ritstjórn Fararheill. Bent er á að ekki sé lengur hægt að finna fargjöld á þeim vildarpunktaverðum sem verið í boði um langt skeið.

Breytingar á vildarpunktakerfi Icelandair en fullyrt að eftir sem áður eigi viðskiptavinir að geta fengið flugmiða á svipuðu verði og verið hefur

Þangað til nýlega var til að mynda oft hægt að verða sér úti um flugfar fyrir 37 þúsund vildarpunkta að viðbættum sköttum og gjöldum. Það miðaverð finnst þó ekki lengur og vantar reyndar mikið upp á.

Hjá Icelandair fékk Fararheill staðfest að breytingar hafa verið gerðar á vildarpunktakerfinu samhliða nafnabreytingu á vildarpunktaklúbbnum í Saga Club. Fullyrðir Guðjón Arngrímsson, blaðafulltrúi Icelandair, að eftir sem áður eigi vildarpunktanotendur að geta fengið fargjöld á svipuðu verði og áður svo lengi sem bókað sé með góðum fyrirvara.

Verið er að samræma Vildarfargjöld við almenn fargjöld. Við færðum hluta af eldsneytisgjöldum, sem áður voru fyrir utan, inn í Vildarpunktaverðið ( 8000 krónur til Evrópu og tæplega 15.000 til USA). Á sama tíma fjölguðum við fargjöldum en vildum samt miða við að halda sömu verðum og fyrir breytingar – nema hvað félagar borga nú lægra í eldsneytisgjöldin.

Ef félagar bóka með fyrirvara eins og áður, þá fá þeir sömu verð og áður að mestu leyti, sum lækkuðu aðeins og sum hækkuðu aðeins. Nú erum við hinsvegar með meira framboð bæði inn í hvert flug og á fleiri áfangastaði. Í þeim tilvikum þar sem vélarnar okkar eruð orðnar mikið bókaðar og ódýrari sæti uppseld eru félagar þar af leiðandi að sjá hærri punktaverð, en á móti erum við með flug í boði á áfangastaði sem var ekki áður. Við heimilum líka núna að bóka út á einu farrými og heim á öðru.