Tíðindi

Útsala til Kanarí

  24/11/2012No Comments

Svo virðist sem sala ferða til Kanaríeyja sé dræmari en venjulega. Allavega má draga þær ályktanir af tilboðum tveggja ferðaskrifstofa þennan daginn.

Nú er komist til Kanarí eða Tenerife á útsöluverði með Heimsferðum eða Vita ferðum

Bæði Heimsferðir og Vita ferðir bjóða áhugasömum sérstilboðsverð á ferðum til Kanaríeyja á næstu vikum. Man ritstjórn Fararheill ekki eftir því áður að tvö slík tilboð hafi verið í boði á sama tíma.

Hvort það er tilviljun ein eður ei þá bjóðast áhugasömum flug fram og til baka hjá báðum aðilum á nákvæmlega sama verði eða 49.900 krónur á mann.

Slíkt er í boði bæði 30. nóvember og 5. desember hjá Heimsferðum og á sömu dagsetningum hjá Vita ferðum og þann 24. nóvember að auki.

Bæði er um flug til Kanarí og Tenerife að ræða í báðum tilvikum og er um helmings afslátt að ræða frá hefðbundnu verði.

Heimasíða Heimsferða hér.

Heimasíða Vita ferða hér.