Tíðindi

Farangursgjald Wow mælist sérstaklega vel fyrir hjá fólki með engan farangur

  25/11/2012No Comments

Sérstakt farangursgjald Wow Air mælist sérstaklega vel fyrir hjá þeim sem ekki ferðast með neinn farangur að því er fram kemur á fésbókarsíðu fyrirtækisins.

Samkvæmt svari Wow Air við kvörtun viðskiptavinar er ánægja með sérstakt farangursgjald félagsins hjá þeim sem ferðast með lítinn farangur. Skjámynd af fésbókarvef Wow Air

Þar má finna ýmsar aðfinnslur fólks vegna þess aukagjalds sem Wow Air hóf að innheimta í haust en nú þurfa farþegar þess að greiða sérstaklega fyrir allan farangur sinn eða 2.900 krónur fyrir hverja tösku upp að 20 kílóum.

Í svari Wow við reiðilegri fyrirspurn vegna þessa kemur fram að „þetta hefur verið í nokkrar vikur hjá okkur og mælst vel sérstaklega hjá þeim sem eru ekki að ferðast með mikinn farangur því það má fara með 8 kg handfarangur inn í vélina (nemendur og fólk í styttri ferðum og viðskiptaferðum).“

Fararheill leitaði töluvert á fésbókarsíðu Wow að þeim röddum sem dásama farangursgjaldið eða dásama að losna við farangursgjaldið en fann ekki. Enda er engin sérstök ástæða til að fagna slíku að mati ritstjórnar.

Þætti okkur vænt um að heyra í lesendum sem telja farangursgjaldið af hinu góða. Netfangið er fararheill@fararheill.is