Tíðindi

Bull og vitleysa hjá Icelandair

  26/11/2012No Comments

Icelandair er stundvísasta flugfélag Evrópu að því er fram kemur í frétt sem vefur Morgunblaðsins birtir í morgun og er eins og oft áður hjá þeim miðli orðrétt upp úr tilkynningu frá flugfélaginu. Verst er að þetta er bull og vitleysa.

Stundvísasta flugfélög Evrópu samkvæmt Mogganum. Rétt er, séu upplýsingarnar réttar, að Icelandair er stundvísast flugfélaga í samtökunum AEA.

Í tilkynningunni stærir flugfélagið sig af því að vera stundvísast evrópskra flugfélaga annan mánuðinn í röð samkvæmt fyrirsögn Morgunblaðsins. En flugfélagið er aðeins stundvísast flugfélaga innan samtakanna Association of European Airlines, AEA, og þar eru aðeins 32 flugfélög sem eru fjarri því öll flugfélög Evrópu. Engin lággjaldafélög eru þar á meðal og fjöldi hefðbundinna flugfélaga ekki heldur.

En þar fyrir utan hefur Icelandair ekki orðið við beiðni Fararheill um staðfestingu á þessu frá AEA því á vef þeirra samtaka er ekkert að finna um hvaða flugfélag samtakanna er stundvísast hverju sinni. Við höfum því aðeins orð Icelandair fyrir að félagið sé stundvísast.

Þess utan stemmir það alls ekki við stundvísitöflur Flightstats sem er óháður flugvefur. Eins og sjá má hér var Icelandair ekki á blaði yfir stundvísustu flugfélögin í Evrópu í október. Það kemst ekki einu sinni inn á topp tíu listann.