Tíðindi

Til Las Vegas fyrir klink

  26/11/2012No Comments

Breska ferðaskrifstofan Flight Centre býður reglulega upp á skynditilboð þar sem flug og ferðir fást á sérstaklega góðum kjörum. Vert er að vera á vaktinni miðvikudaginn 28. nóvember sé Las Vegas einn af draumastöðunum.

Gisting á glæsihótelinu Mandalay Bay í Las Vegas er meðal tilboða Flight Centre í Bretlandi. Fjórar nætur þar og flug kostar um 150 þúsund á mann.

Þó tilboð ferðaskrifstofunnar taki ekki gildi fyrr en á miðvikudag hafa allnokkur tilboðanna þegar verið birt og ná þau öll með tölu til ferða frá Englandi til Las Vegas í Bandaríkjunum.

Uppgefin verð eru æði fýsileg en auðvitað þurfa Íslendingar að koma sér til London til að grípa þessar gæsir og greiða fyrir það aukalega. En tíminn er nægur því tilboð Flight Centre ná vel fram á næsta ár.

Meðal þess sem er í boði er flug og gisting í fjórar nætur í syndaborginni fyrir 120 þúsund krónur á haus svo fátt eitt sé nefnt en nánar má kynna sér tilboðin hér.