Það er ekki heiglum hent að skila dýru en ónýtu víni sem keypt hefur verið í fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli. Fólk sem hefur reynt að skipta tólf þúsund króna flösku af rauðvíni sem keypt var í fríhöfninni en fæst hvergi annars staðar þarf að gjöra svo vel að fara með flöskuna alla leið í Leifsstöð.
Eftir mikið þref, japl og fuður og verið vísað út og suður af ÁTVR annars vegar og innflytjanda vínsins hins vegar er niðurstaðan sú að fólkið þarf að gösslast suður til Keflavíkur til að skila víninu.
Fáir eiga nú sérstök erindi þangað svona utan þess þegar haldið er utan eða komið heim og enginn er að fara að greiða þann kostnað eða tíma sem af því hlýst að þvælast þangað sísona.
Það eru því óvitlaust tilmæli að sleppa því að kaupa dýrari vín í Leifsstöð því vesenið sem fylgir reynist vínið ónýtt er einfaldlega ekki þess virði.






