Mörg okkar fölbleiku hér á klakanum Íslandi höfum fyrir lifandis löngu fengið okkur fullsödd af kulda og trekki þegar nýtt ár gengur í garð venju samkvæmt í byrjun janúar. Sérstaklega þegar sumarið á undan var lítt upp á fiska marga.

Ólíkt Kanaríeyjum er Madeira stórkostleg náttúrusmíð og eins og Fararheill hefur sagt áður: ein fallegasta eyja á Atlantshafi

Ólíkt Kanaríeyjum er Madeira stórkostleg náttúrusmíð og eins og Fararheill hefur sagt áður: ein fallegasta eyja á Atlantshafi

Eftirtektarsamir lesendur Fararheill hafa mögulega tekið eftir að færslufjöldi okkar í janúar og febrúar ár hvert er mun minni en aðra mánuði ársins.

Ástæðan sú að við erum meira eða minna öll á vappi annars staðar í heiminum á þeim tíma. Þó ekkert okkar sé spennt fyrir júlíhitum Alicante þá þolum við enn síður frost mánuðum saman með sífellt þunglyndari Íslendinga á bakinu heldur.

Einn uppáhaldsstaður okkar er eyjan Madeira og þangað ætlar einn úr hópnum snemma á næsta ári. Leit leiðir í ljós að Úrval Útsýn hans Pálma Haraldssonar býður eina ferð á staðinn í apríl.

Þar er gist í vikutíma og verðið með allra ódýrasta fimm stjörnu hóteli sem í boði er 189.900 krónur á mann miðað við tvo. Heildarverð í viku með morgunverði alls 379.800 krónur.

Plús í kladda ÚÚ fyrir að bjóða eina slíka ferð en hún er heldur seint fyrir suma svellkalda Íslendinga sem kíkja þá á ferðir frá helstu nágrannalöndum.

Allra fyrsta ferðin sem við rekumst á er með ferðaskrifstofu flugfélagsins Norwegian. Við leitum að tveimur vikum á fimm stjörnu hóteli í janúar, stundum á fólk bara að lyfta sér upp með stæl burtséð frá bankareikningnum, og finnum þess slags tilboð fljótt og örugglega fyrir 178.400 krónur á mann miðað við tvo saman. Parið kemst því með Norwegian til Madeira fyrir samtals 356.800 krónur.

Púff segir þú kannski lesandi góður. Munurinn aðeins 23 þúsund krónur….

Ekki alveg. Ferð Úrval Útsýn er í eina viku. Ferð Norwegian í tvær. Það má því segja að tilboð þeirra norsku sé meira en helmingi betra en tilboð íslensku stofunnar.

Þetta sætta Íslendingar sig við ár eftir ár.

Tilboð Norwegian í janúar

Tilboð Norwegian í janúar

Tilboð ÚÚ þremur mánuðum síðar

Tilboð ÚÚ þremur mánuðum síðar