Þegar þetta er skrifað eru sjö dagar í að leigurella hefji sig til flugs frá Keflavík áleiðis til Kúbu í vikulangri skipulagðri ferð ferðaskrifstofu svindlarans Pálma Haraldssonar. Ferð sem skíthællinn atarna mun líklega skíttapa peningum á.

Miðað við auglýsingar á öllum miðlum lítur ekki út fyrir að þessi skíthæll græði neitt á skitinni Kúbuferð. Gott mál í alla staði.

Alltaf ástæða til að blæða í góða kampavínsflösku þegar Pálmi Haraldssonar tapar peningum og það virðist vera raunin á ferð Úrval Útsýn, sem Haraldsson á með húð og hári, til Kúbu þann 10. nóvember næstkomandi.

Við gætum haldið ágæta tölu um marga galla þessarar „sérferðar” til Kúbu. Galla á borð við lengd ferðarinnar. Tuttugu stunda flug fram og aftur og dvölin aðeins tæpir sjö sólarhringar. Eða galla á borð við að allra lægsta verð á pakkanum fyrir hjón eða par með gistingu kostar litlar 698.700 krónur!!! Sem þýðir að hver dagur í túrnum kostar hjónakornin 99.700 krónur.

Það ósköp eðlilegt verð í landi þar sem meðal mánaðarlaun almennings eru heilar fjögur þúsund íslenskar krónur.

Jú, víst leggja hótel og ferðaþjónustuaðilar duglega ofan á allt eins og hér heima en að heimta sjö hundruð þúsund krónur fyrir túr sem í versta falli kostar ferðaskrifstofuna 250 þúsund krónur er sama græðgi og kom Pálma syni Haralds kyrfilega í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis vegna bankahrunsins 2008.

Kíktu bara. Gaurinn hefur ekkert lært og greiðir ekki einu sinni skatt eins og við hin af gróðanum eins og lesa má um hér.

En fátt er svo með öllu illt. Sökum þess hve stutt er í brottför og fáir hafa meldað sig er nú allt í einu hægt að fá flugið eitt og sér, fram og aftur, 10.- 18. nóvember, niður í 99.900 krónur per haus. Fokdýrt auðvitað en hér gefst þó færi á að upplifa sömu hluti og bjóðast í sérferð Úrvals Útsýn fyrir helming þess sem Úrval Útsýn heimtar fyrir sitt.

Flugið fyrir tvo kostar því 199.600 krónur. Súperflott fimm stjörnu gisting í Havana eða Varadero í vikutíma fæst þann tíma niður í 150 þúsund krónur.

Ók, flugið og gistingin fyrir tvo komin niður í 356.600 krónur. Sem merkir að við eigum inni 343 þúsund krónur til að dekka þrjár, fjórar skoðunarferðir sem eru innifaldar í verðinu hjá Úrval Útsýn. Ef við þorum að leigja flotta íbúð þennan sama tíma í stað þess að dvelja á enn einu steingeldu hótelinu finnum við fullt af leiguíbúðum í vikustund niður í 50 þúsund krónur. Sem aftur merkir að heildarkostnaður fyrir flug og gistingu í viku er kominn niður í 256 þúsund krónur.

Tveir úr ritstjórn hafa heimsótt Kúbu nýlega. Báðir aðilar leigt íbúð og fengið góðan leigubílstjóra til að rúnta um helstu staði bæði í Havana og utan í vikutíma. Að meðtöldu hreint ágætu þjórfé kostuðu þau herlegheit innan við hundrað þúsund krónur. Í öðru tilfellinu ók bílstjórinn alla leið niður Kúbu til Santiago de Cuba með gommu af flottum stoppum á leiðinni.

Með öðrum orðum: Kúba er hræódýr og ljómandi yndislegur áfangastaður ef þú þorir og getur græjað hlutina sjálf/-ur. Þannig sparar þú auðveldlega 300 þúsund krónur hið minnsta miðað við sérferð Úrval Útsýn. Og þú treður ekki seðlum í vasa svindlarans Pálma Haraldssonar 😉