Einhver gæti haldið að ekki sé heiglum hent að negla góða gistingu með litlum fyrirvara á heimsfrægum stöðum eins og Róm í sumar. Það fer eftir því hvar þú leitar 🙂

Dolce vita í Róm. Heitt í borginni í júlí í orðsins fyllstu 🙂

Þetta er eins og með allt. Fyrir ekki svo löngu gátum við aðeins verslað í Kaupfélaginu því ekkert annað var í boði. Kaupfélagsmenn, sem yfirleitt voru samansaumaðir Framsóknarmenn af lífi og sál, nýttu sér það til að nauðga okkur fjárhagslega um áratugaskeið.

Svo batnaði hagur Strympu og aðrar og nýjar verslanir opnuðu dyr sínar. Verðlag hrapaði um helming þó enn væri vissulega verið að okra á landanum. En það er ætíð staðreynd að meira og aukið úrval er það eina sem stendur milli okkar og gróðrarfíknar skíthæla.

Víkur þá sögunni að skattaskjólselskandi bókunarvefnum Booking.com. Við leituðum þar að hentugu hóteli í Róm í júlí næstkomandi. Þar er Booking að bjóða okkur tæplega fjögur þúsund mismunandi gististaði. Ekkert smáræði.

Eða hvað?

Kíkjum yfir á hótelbókunarvef Fararheill og skoðum hversu mörg hótel eða gistihús eru í boði á þeim bænum í Rómarborg. Skjáskotið segir allt sem segja þarf. Yfir SAUTJÁN ÞÚSUND gistimöguleikar í borginni og þar af rúmlega 4.800 sem eru lausir um miðjan júlí.

Töluverður munur á fjögur þúsund gistimöguleikum og sautján þúsund gistimöguleikum ekki satt?

Svona svipaður munur og var á einokunarpakka Kaupfélagsins forðum tíð og verslun í nútímanum þar sem við höfum sæmilegt val.