Það er kýrskýrt í lögum landsins að óheimilt sé að auglýsa vöru eða þjónustu á lægra verði en hún býðst almenningi í raun og veru. Icelandair hundsar þessi lög aftur og aftur og aftur, árum saman vandræðalaust.

Skoðaðu skjáskotið hér til hliðar. Þar kynnt nýjung hjá Icelandair sem kallast skammdegistilboð og stendur fyrir lægri fargjöld en almennt til ýmissa áfangastaða.

„Verðið hjá okkur lækkar samferða birtunni, Brussel, Dublin, London, Manchester, Munchen, New York, Osló, Stokkhólmur og Tampa bíða þín. Verð aðra leið frá 9.900 kr. á Economy Light eða frá 15.300 vildarpunktum.”

Gott og blessað. Hljómar vel nú þegar kuldaboli er farinn að gera alvarlega vart við sig og menn og konur þurfa að skafa rúður bíla sinna hvern einasta morgunn. Gott betur reyndar því 9.900 krónur aðra leið lóðbeint í sólina á Flórídaskaga er ekkert annað en SÚPERTILBOÐ.

En sorrí Stína. Það er enginn að fara að fljúga til Tampa í Flórída fyrir 9.900 krónur. Enginn heldur að fara að fljúga til New York fyrir 9.900 krónur. Þaðan af síður er nokkur að finna flug með Icelandair til Munchen eða Brussel niður í 9.900 krónur.

Einu staðirnir sem uppgefið verð í auglýsingu Icelandair nær til eru Osló, Dublin og Stokkhólmur eins og glögglega má sjá þegar smáa letrið er skoðað:

 

Sólin í Flórída á 9.900 krónur? Ekki láta þig dreyma um það. Lágmarksverð aðra leiðina þangað er bara tæplega 200 PRÓSENT DÝRARA en Icelandair gefur í skyn.

Sjáum ekki betur samkvæmt neytendalögum en að Neytendastofa geti beitt fyrirtæki sektum sem ekki fer að lögum. Þetta hefur Icelandair gert aftur og aftur og aftur og aftur. Svo ekki sé minnst á aftur án þess að einn einasti starfsmaður Neytendastofu vakni upp af Þyrnirósarsvefni!!!

Út með þetta skítapakk hvers eina djobb það er að gæta hagsmuna almennings og hvers forstjóri þiggur rúma milljón í mánaðarlaun fyrir það. Þessi stofnun ræður ekki við og hefur aldrei ráðið við verkefnin. Reka þetta lið prontó takk.