Það hljómar líklega kjánalega en það má sjoppa allmargar jólagjafir í Leifsstöð og borga fyrir það 20 til 40 prósent minna en annars staðar í landinu án þess að yfirgefa klakann.

Fríhöfnin í Leifsstöð. Allt þar skattfrjálst og sumt töluvert ódýrara en það.

Tveir af fjórum úr ritstjórn hafa notað þetta trix á síðustu tólf mánuðum en þó einungis sökum þess að um stórviðburði var að ræða. Trixið það að kaupa flugfar út á algjöru botnverði, skottast suður í Leifsstöð, tékka inn í flugið án farangurs, labba svo rakleitt í verslanir og kaupa eins og enginn sé morgundagurinn án þess að stíga fæti um borð í relluna.

Þeir sem með fylgjast vita sem er að allra lægstu flugfargjöld aðra leið út í heim frá Íslandi fást alveg niður í fjögur til fimm þúsund krónur. Nægir að skoða flugfargjöld easyJet, Vueling, Transavia eða Norwegian til að negla slíkt á hinum og þessum tímum ársins. Stöku sinnum er Wow Air líka samkeppnishæft með lágmarksfargjöld niður í sjö þúsund krónur eða svo.

Færri gera sér grein fyrir að þú þarft ekkert að fljúga eitt né neitt þó þú kaupir flugmiða. Flugmiði er líka aðgangsseðill að tollfrjálsri verslun í Leifsstöð og ekki nokkur maður getur bannað þér að versla þar og labba þráðbeint út úr flugstöðinni að því loknu.

Ekki þarf mikið til að slíkt borgi sig. Súpergott 20 ára gamalt viskí kostar 25 þúsund kall í Vínbúðunum en átján þúsund krónur í Fríhöfninni. Þau kaup ein og sér borga flugið sem þú ætlar alls ekki í. Karton af vinsælum sígarettum í Leifsstöð kostar tæpar sjö þúsund krónur en milli þrettán og fimmtán þúsund í næstu verslun. Þú strax komin/nn sex þúsund krónur í plús með þessu tvennu.

Auðvitað er vöruval í Leifsstöð ekki til að hrópa húrra fyrir en ef fólk hefur ekkert að gera einn góðan sunnudag og tekur rúntinn um Reykjanes er óvitlaust að bóka flug þann dag með góðum fyrirvara og sjoppa út í eitt. Það tekur kannski klukkustund og þú sparar að minnsta kosti toll og skatt. Fyrir utan hvað það er indælt að valsa um Leifsstöð án þess að hafa minnstu áhyggjur af því að missa af fluginu.

Því hvaða innlend verslun er að bjóða tax-free á toppvörum rétt fyrir jólin? Engin einasta… Hvað geturðu sparað mikið? Kíktu á það hér.

PS: geri einhver starfsmaður athugasemdir segirðu viðkomandi að hoppa lóðbeint upp í óæðri endann. Engin lög eða reglur meina nokkrum manni að sleppa því að fljúga þó flugmiði sé í vasanum.