Samkvæmt upplýsingum sem komið hafa fram í fjölmiðlum síðustu misseri eyddi Wow Air drjúgri upphæð af takmörkuðum fjármunum til að koma beinu flugi til Indlands á koppinn. Miðað við sölutölur hefur flugfélagið þar veðjað á rangan hest.

´

 Rétt rúmur mánuður er þangað til fyrsta rella Wow Air hefur sig flugs alla leið til Nýju-Delí á Indlandi og auðvitað jómfrúarflug þaðan og hingað strax í kjölfarið.

Allnokkrum fjárhæðum þegar verið eytt í auglýsingar og markaðsmál vegna þessa af hálfu Wow Air og það meira að segja kostað íslenska skattgreiðendur töluverðar upphæðir líka. Það helgast af því að oggulítið sendiráð Íslands á Indlandi þurfti að fjölga starfsfólki og stækka starfsaðstöðu til að afgreiða vegabréfaáritanir fyrir þann fjölda Indverja sem fljúga vilja til landsins.

En svo virðist sem sá fjöldi hafi kannski verið töluvert ofmetinn sé mið tekið af seldum sætum í sjálfu jómfrúarfluginu þann 7. desember næstkomandi. Við kíktum á fjölda seldra sæta í fyrsta fluginu og illu heilli fyrir herra Mogensen hafa aðeins selst tæp 11 prósent þeirra 312 flugsæta sem í boði eru í breiðþotu Wow Air. Þetta má glöggt sjá á meðfylgjandi skjáskotum á bókunarvef Wow Air.

Er alveg að marka seld sæti?

Nei, almennt ekki og ástæðan sú að þeir farþegar sem vilja ekki greiða sérstaklega fyrir sæti fá auðvitað ekki að velja sérstakt sæti fyrir brottför. Þeir verða að bíða brottfarar til þess að vita hvaða sæti þeir fá afgreitt.

Ekki beint barist um sætin í jómfrúarflugi Wow Air frá Nýju-Delí í næsta mánuði. Skjáskot

Það er því ekki alveg útilokað að Wow Air sé að mokselja í fyrsta flugið frá Indlandi en það hæpið með afbrigðum. Tvær ástæður helstar fyrir því:

Annars vegar að þetta er alvarlega langt flug. Algengur flugtími milli Nýju-Delí og Keflavíkur rúmlega tólf klukkustundir en klukkustund skemur sömu leið til baka. Flest sæti í vélum Wow Air eru þrengri en nálarauga fyrir úlfalda sem fæstir gera veður útaf í skemmra þriggja til fjögurra klukkustunda flugi en sjö til átta klukkutímar ofan á það og setan verður óbærileg flestu venjulegu fólki. Með öðrum orðum þá ættu svokölluð XL-sæti eða XXL-sæti að seljast eins og heitar lummur frá Nýju-Delí. Blóðtappi ekki eitthvað sem þú vilt fá frítt með í flugi til Íslands.

Hins vegar sú staðreynd að þrátt fyrir að Wow Air kalli sig lággjaldaflugfélag þá beinist auglýsingaherferð flugfélagsins að meðalríku og ríku fólki í Nýju-Delí. Hugmyndin er jú að selja Indverjanum glingur og drasl á leiðinni og taka þannig inn alvöru tekjur þó flugfarið sjálft kosti engin ósköp. Og þar sem enginn skortur er á ríku fólki í þessu bláfátæka landi vekur sannarlega athygli að öll dýrustu sætin með bestu þjónustunni og mesta fótaplássinu eru meira og minna laus þegar þetta er skrifað.

Ágæt sala um jól og áramót

Auðvelt er að sjá hvaða flugferðir Wow Air eru að gera sig og hverjar ekki. Það sést á verðmiðanum því verð á öllum farrýmum hækkar stig af stigi þegar fimm til tíu sæti seljast.

Þannig má ljóst vera að flugferðir Wow Air til og frá Indlandi yfir jól og áramót virðast vera að rokka. Verð töluvert hærra en auglýst lægsta verð. Botninn dettur þó fljótlega úr því upp úr áramótunum samkvæmt stöðunni í dag.

Sem einnig lyftir augnbrún eða tveimur. Fæst okkar bíða fram á síðustu stundu með að bóka flug til staða hinu megin á hnettinum. Það ekki dúlluleg helgarferð því flugið eitt og sér fram og aftur tekur heilan sólarhring af lífinu.

Samkvæmt því ættu því fargjöld Wow Air að hækka lítið eitt frá og með jólum og frameftir næsta ári. Svo er ekki þegar þetta er skrifað. Tiltölulega snör lækkun á fargjöldum fljótlega eftir áramótin.

Sem segir okkur að kannski hafi Wow Air veðjað á kolrangan hest í þessu tilfelli. Og það ekki eins og við höfum ekki haft rétt fyrir okkur allnokkrum sinnum áður…